Valmynd Spurningin
Syrpur Athugasemdir

Jólasveinar Grýlusynir í Tjöruhúsinu

Elfar Logi
Elfar Logi
Ég var heppinn, en það kemur stundum fyrir. Ég vann í einhverskonar happadrætti, en það kemur aldrei fyrir mig. Þessvegna ætla ég að splæsa heilu bloggi í fagnaðarlætin. Ég vann 2 miða á sýningu Elfars Loga Kómedíumeistara, Jólasveinar Grýlusynir. En öðlingurinn Elfar, bætti við einum miða í vinninginn, þannig að Ég, Hrefna&Saga Líf skelltum okkur í leikhús í gær. Við mætingu byrjaði stemmingin, en Billa stóð í dyrunum í sínu fínasta jóladressi og bauð okkur velkomin í leikhús. Boðið var upp á léttar og ódýrar veitingar áður en sýning hófst. Elfar tók þetta svo með stæl eins og oft áður og skemmtum við okkur konunglega yfir hinum og þessum karakterum ásamt jólasveinunum öllum. Var þetta kærkomin sunnudagsskemmtun og smellti ég þessu í myndasyrpu sem má nálgast hérna.

Endilega kíkið á dagskránna og skellið ykkur á skemmtilega sýningu.

Dalaport á sunnudag

Sumarútsýni frá Arnardal
Sumarútsýni frá Arnardal
Ætla að skella mér í Arnardal á morgun, og taka þátt í Dalaportinu en það er mun betri gerð af porti en almennt tíðkast. Virkar svipað og portið er kennt er við kol, en auðvitað miiiiiiiiklu betra, enda skipulagt af öðlingsparinu Önnsku og Úlfi. Ætla að vera með nokkrar útprentaðar myndir til sölu á kostakjörum auðvitað og ert ÞÚ kvattur til að mæta!

Takk fyrir mig

Íslenzkt!
Íslenzkt!
Opnunin á sýningunni gekk fínt. Mætti þarna um morguninn og mokaði búrið út úr sköflunum með hjálp búrstjórans mikla. Alls mættu um 21 manns og tel ég það bara ágætt miðað við veður :) Vel gekk á slátrið og mjólkina og kunnu gestir vel að meta þessar alíslenzku veitingar, en þó aðalega börnin og hundurinn.

Sýningin stendur áfram og hvet ég alla til að kíkja við og bera þessa örsýningu augum.
Hérna eru myndir frá opnuninni.

Sýningu frestađ fram á Laugardag!

Arngrímur snillingur
Arngrímur snillingur
Ég frestaði ljósmyndasýningu minni fram á laugardag, en hún átti að opna kl: 17:00 í dag. Veðrið er bara þannig að ekkert myndi sjást í myndirnar ofan í búrinu sem er hinn eiginlegi sýningarsalur :) Og hvort einhver myndi mæta, er ég ekki viss og lái ég það engum.

Opnunin verður sumsé á laugardaginn næsta kl: 16:15 niður í Neðstakaupstað. Vona að allir þeir sem ætluðu að koma í dag sjái sér fært að koma þá.

Takk fyrir.

Endilega kíkið á aðra atburði Veturnátta, allt annað á dagskránni í dag er innahúss. Fullt skemmtilegt að gerast. Meðfylgjandi mynd var tekin fyrir ljósmyndakast Krumma sem opnar í dag kl: 18 í Hamraborg. Sjáumst þar!

Muna svo eftir að skrifa undir á indefence.is!
Fyrri síđa
1
2345678Nćsta síđa
Síđa 1 af 8
Flickr
Bloggrúllan
08.09.2010 | TIME.com: Top Photoessays and Slideshows

Photos: Robert Gates in America's War Zones

The Secretary of Defense travels to Afghanistan after attending handover ceremonies in Iraq
Fleiri blogg
Ljósmyndir
  • Tungudalsvirkjun í Tungudal