Valmynd Spurningin
Syrpur Athugasemdir

Undirbúningur

Málaraandskotinn!
Málaraandskotinn!
Ég er á fullu þessa dagana. Æði um, málandi veggi, betlandi hermannaföt og suða í fólki um að sitja fyrir hjá mér. Ég er að undirbúa tökur fyrir sýningu og djöfull er það gaman. Þetta er kikk, ekkert minna!
Vil nota tækifærið og biðja ykkur um að hringja í mig ef þið eigið hermannafatnað, merki þýzka hersins, Luftwaffa, járnkrossar, hakakrossar, mjúkir kossar og hvað þetta nú allt heitir. Síminn er 840 4002.

Þú ert frábær!

Róbert Dađi Friđriksson

Róbert Dađi Friđriksson. Mynd: Pjétur Geir
Róbert Dađi Friđriksson. Mynd: Pjétur Geir
Langaði aðeins að minnast á gamlan vin og jafnaldra sem fallinn er nú frá. Hann Róbert Daði lést nú fyrir rétt rúmri viku síðan. Minnist ég drengsins sem góðum og kátum strák sem bjó hérna fyrir vestan fyrri hluta ævi sinnar. Var hann einn af mínum betri vinum á tímabili og áttum við skemmtilegar stundir saman ásamt Pjétri Geir hérna í gamla daga.
Skrifaði Pjétur góða minningargrein um hann og vil ég tengja í hana hér.

Vil ég votta aðstandendum mína einlægu samúð.

Daði, blessuð sé minning þín.
Flickr
Bloggrúllan
08.09.2010 | TIME.com: Top Photoessays and Slideshows

Photos: Robert Gates in America's War Zones

The Secretary of Defense travels to Afghanistan after attending handover ceremonies in Iraq
Fleiri blogg
Ljósmyndir