08.10.2012 - 13:47

Fjölskylduferð á Snæfellsnes

Lónadrangar á Snæfellsnesi
Lónadrangar á Snæfellsnesi

Við skruppum í smá roadtrip, við fjölskyldan, á Snæfellsnes núna á laugardaginn. Eins og Íslandi sæmir á haustin, fengum við allskonar veður í þessari ferð. Fjölskyldumeðlimir voru misglaðir með það(því þá var meira bílhangs) en allir skemmtu sér þó ágætlega á endanum. Okkur tókst auðvitað að semivillast, en við ætluðum einhverja öðruvísi leið en venjulega til baka, fórum hana, en beygðum eina vitlausa beygju, og hvað gerist þá....auðvitað önnur útkoma en ætlað var. Leiðin var þó ekkert vitlaus þannig séð, skilaði sömu útkomu, en var mun lengri :) Það var ekki mikið myndanerdast, þar sem það er ekki vel séð að stoppa allstaðar og 2 tíma á hverjum stað, en fékk að stoppa við Lóndrangana og smella af einni mynd þar. En læt fylgja með smá fjölskyldumyndasyrpu hérna í slædsjóvinu að neðan.




Trip to Snæfellsnes - Images by Agust Atlason

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun