05.11.2012 - 20:10

Grænlandsferð 2010 - Dagur 3 - Slideshow

Mér var sagt að klappa ekki hundunum, ég fór eftir því.
Mér var sagt að klappa ekki hundunum, ég fór eftir því.

Nohh strákurinn bara í stuði. Fór að fletta þessum myndum svolítið og minningarnar sem flæða um hugann eru skemmtilegar. Þetta var ómælanleg reynsla, að fá aðeins að líta inn í þorpslíf á austur Grænlandi. En hvar sem maður gekk um þarna, tók á móti manni brosandi fólk. Ég er enn staddur í Taasilaq eins og á degi 2.

 

Það ringdi svo mikið þennan dag að myndavélin mín dó um miðjan daginn. Ég fékk sjokk þá, því hún var bara drukknuð! En ég skaust niður í skútu og skellti henni á ofn í 3 tíma og viti menn, hún hrökk í gang aftur og hefur ekki klikkað síðan, hef ekki einu sinni látið kíkja á hana :)

Maður ætti kannski ekki að segja frá þessu, en ég gleymdi vatnshelda, sérsmíðaða pokanum utan um vélina....í skútunni!

 

En dagarnir á Grænlandi voru 17, dagur 3 fylgir hérna með í slideshowi, smellið á Meira!

 


08.15 2012 - Images by Agust Atlason

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun