Hornstrandir - Slideshow
Hornstrandir leita á hugan reglulega hjá mér. Þangað hef ég ekki farið mjög oft, 4 sinnum, á 5 árum. En það er nú kannski bara hellingur, þar sem þetta er ekki auðfarið. En það er alltaf jafn gaman að koma þarna og njóta náttúrunnar eins og hún gerist sem hráust, en samt svo full af lífi. Þarna kemst maður í einhverja snertingu við náttúruna, sem er aðeins hægt á fáum stöðum í nútíma lífi. Þetta er draumastaður ljósmyndarans og náttúruunnandans. Þarna getur maður gengið með refum og flogið með fuglum, eða svona næstum því.
Læt fylgja með slideshow úr ferð sem ég fór 2009 með Matt Willen stórvini mínum. Þarna sigldum við með Reimari Vilmundarsyni, öðrum stórvini mínum, frá Norðurfirði í Árneshreppi og frekar gaman að sigla þessa leiðina og virða fyrir sér strandlínuna.
Munið eftir fullscreen möguleikanum þarna í hægra horninu, niðri :)
Hornstrandir Westfjords - Images by Agust Atlason