Íslenskir ljósmyndarar - Spessi
Hvað getur maður sagt, þegar Spessi á í hlut? Ansi margt myndi ég segja, því hann hefur verið mitt uppáhald frá því ég fór að fikta við þetta upp úr 1996. Spessi er ísfirðingur eins og ég og var hann að láta sjá sig fyrir vestan af og til á þessum tíma, til að gera verkin Hetjur og Hetjur II. Ég grenjaði mig inn á að aðstoða hann í að gera Hetjur II og lærði heilann helling á því. Fékk hann svo til að koma vestur og smíða með mér myrkrakompu, eða semja hvernig hún var sett upp, þetta var í Hlíðarskjóli, á gamla leikskólanum mínum. Svo hélt hann námskeið í kompunni, þetta voru gullaldartímar í minni ljósmyndun.
Það sem ég kann best við verk Spessa, er að þau eru heiðarleg, flott sýn á veruleikann eins og hann er, ekkert meira, ekkert minna. Svo kann hann að stuða áhorfandann með sínum eigin aðferðum. Fer alltaf sínar leiðir og er engum líkur. Það gerir enginn portrett eins og hann.
Kíkið á vef Spessa, þar eru margar gersemar.