Lítið skref fyrir mannkynið - En risastórt skref fyrir mig!
Í gær fannst mér ég taka stórt skref á ljósmyndaferli mínum. Svona skref til framtíðar og sennilega eitt það stærsta í því að gerast "pro". Ég fann flottann flasspakka frá Profoto og keypti hann. Þetta eru notaðar græjur frá því herrans ári 2007, en fyrir mér er þetta top of the line stuff! Keypti mér B2r generator, 2 Pro B hausa og með þessu fylgdu ljósmælir, sendar, octabox, regnhlíf, standar, sandpokar og flottar töskur utan um allt saman. Bætti svo við og fór í Beco og tók með einn fegurðardisk. Auðvitað vantar manni slatta af stuffi ennþá, en þetta er samt flott start inn í þennan búnað, því það er alltaf dýrast að byrja. Nú byrjar maður bara að safna utan á þetta.
Með þessu ætla ég svo að nota gamla draslið mitt, sem samanstendur af þrem 400w mónóljósum frá Bowens og Lastolite. Búinn að notast við það stuff síðan 2007 með misgóðum árangri, en maður hefur nú alltaf sagt að það eru ekki græjurnar sem gera góðu myndirnar, þó þær hjálpi auðvitað helling til :)
Tók svo eitt snapshot af Sögu fyrirsætu með fegurðardiskinum og læt fylgja með, stofan er ágætis studio!