14.03.2012 - 11:43
Nýr vefur með stóru vestfirsku myndasafni
Sett hefur verið upp nýtt útlit og einnig hefur verið sett upp myndasafn upp hjá Photoshelter, en þeir eru með innbyggða vefverslun og skemmtilegt kerfi til að halda utan um og afhenda viðskiptavinum myndir. Það er von mín að halda þessu með reglulegum skrifum, oft hefur verið reynt en aldrei haldið úti neinum reglulegum skrifum. Ætli þetta verði ekki að mestu ljósmyndatengt blog og maður getur notað þetta til að sýna hvað maður er að gera í það og það skiptið. Ég fór sjálfstætt starfandi í þetta núna um áramót og hef haft nóg að gera. Hef tekið að mér alla almenna ljósmyndavinnu, þar á meðal að mynda töluvert af mat og einnig líka verkefni eins og að mynda vinnslu í rækjuverksmiðju, taka myndir af öllu vinnsluferlinu. Tískuljósmyndun hef ég líka sinnt og læt ég fylgja með hérna slideshow frá þeirri vinnu :)
Blog-ið verður á íslensku einungis, en annað efni er á ensku, eins og er.
Takk fyrir innlitið og ég vona að þú kíkir sem oftast við :)
GuSt Winter 2012-2013 - Images by Agust Atlason
Blog-ið verður á íslensku einungis, en annað efni er á ensku, eins og er.
Takk fyrir innlitið og ég vona að þú kíkir sem oftast við :)
GuSt Winter 2012-2013 - Images by Agust Atlason