17.10.2012 - 17:13

Skemmtilegt djobb

Þau er misjöfn eins og þau eru mörg, djobbin í ljósmynduninni. Stundum detta inn á borð hjá manni skemmtileg en mjög krefjandi djobb, sem krefjast mikillar einbeitningar. Ég veit ekki hvað þið segið við þessu, en að mynda alla krakkana á heilum leiksskóla er ekkert grín!

Leikskólinn Hraunborg hérna á Bifröst, ákvað að fara í samstarf með foreldrafélaginu og báðu mig um að mynda alla krakkana í leik og starfi, ekkert uppstillt, eða allavega sem minnst. Það eru skemmtilegustu myndirnar að mínu mati, og maður á ekkert að horfa í einhver smáatriði, eins og hreyfingu og þannig lagað, bara gera þetta "on the go" því blessuð börnin geta verið svo óútreiknanleg :)

 

Ég skellti mér því í gírinn í dag og myndaði yngsta kjarnann og tók líka hópmyndir af kjörnunum 3. Á morgun eru það svo eldri kjarnarnir tveir, en alls eru þetta um 60 börn. Það var rosa fjör að mynda þau yngstu, endalaus hlaup og leikur, en þetta hafðist :)

 

Set með hérna nokkrar myndir frá deginum!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun