19.10.2012 - 13:06

Skemmtilegt djobb - dagur 2

Jamm, fór aftur á leikskólann að mynda börnin. Svipað hress dagur og sá fyrri, gat aðeins meira rætt við þessi börn, enda eldri. Allt gekk vel og reyndi ég að festa á minnið nöfn allra barnanna, en því miður tókst það ekki alveg, en það situr alveg hellingur eftir. Hef alltaf verið meira minnugur á andlit en nöfn, þannig er nú það.

 

En Bifrestingar eru ríkir, það má með sanni segja. Þvílíkur fjársóður sem þessir krakkar eru. Maður fékk allt frá faðmlögum og upp í koss á kinn frá þeim og það er sem er, börnin eru alltaf svo einlæg, eitthvað sem við fullorðna fólkið mættum gera meira af :)

 

Svo látum við nokkrar myndir fylgja með!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun