Tilboð á prentun - 15% afsláttur til 15. Desember!

 

Tilvalið til jólagjafa!

 

Þar sem ég er að fara í aðgerð á fæti í fimmta sinn þann 16. janúar næstkomandi, hef ég ákveðið að reyna að safna mér fyrir fartölvu sem ég get unnið á í þá 3 mánuði sem ég er í gifsi og fastur upp í sófa. Þegar maður er í námi og vinnur fyrir sjálfan sig er erfitt að afla tekna á meðan ástandið er svona. Sér í lagi þar sem konan er við ritgerðarsmíð og óvíst með vinnu eftir áramótin. Ef ég hef hinsvegar fartölvu, þá er lítið mál fyrir mig að vinna upp í sófa heima og bæði losna við að leiðast og þá get ég halað inn pening fyrir heimilið. Ef þig hefur einhverntíman langað í mynd eftir mig upp á vegg, eða veist um einhvern sem á það skilið frá þér, þá bið ég þig að nýta tækifærið núna :)

 

Ég hvet fólk til að skoða albúmin mín, flestar myndirnar sem fólk leitar yfirleitt af eru undir Scenes from places safninu og þar má finna möppur frá hinum ýmsu svæðum. Ef ykkur vantar hjálp við valið eða einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hringja í síma 8404002.

 

Sendið mér svo slóðina á myndina og upplýsingar um stærð á agustatla@gmail.com.

 

A.T.H: Verðin hafa ekki hækkað í 3 ár.

 

Strigaprentuð mynd á blindramma:

  • 20x30cm - 20.000 -15% = 17.000
  • 30x45cm - 22.000 -15% = 18.700
  • 40x60cm - 25.000 -15% = 21.250
  • 50x75 cm - 30.000 -15% = 25.500
  • 80x120cm - 47.000 -15% = 39.950
  • 100x150cm - 70.000 -15% = 59.500
  • 30x30cm - 23.000 -15% = 19.550
  • 50x50 cm - 25.000 -15% = 21.250
  • 80x80cm - 40.000 -15% = 34.000
  • 100x100cm - 60.000 -15% = 51.000
  • 70x20cm ca* - 25.000 -15% = 21.250 (Panorama) *Hæð ræðst af lengd
  • 90x30cm ca* - 35.000 -15% = 29.750 (Panorama) *Hæð ræðst af lengd
  • 100x40cm ca* - 40.000 -15% = 34.000 (Panorama) *Hæð ræðst af lengd

Ef óskuð stærð er ekki í þessum lista, hafðu þá bara samband og við finnum út úr því.

 

Prentun á gæða ljósmyndapappír:

  • 40x60cm - 19.000 -15% = 16.150
  • 60x90cm - 24.000 -15% = 20.400
  • 90x120cm - 32.000 -15% = 27.200
  • 40x40cm - 18.000 -15% = 15.300
  • 60x60cm - 21.000 -15% = 17.850
  • 90x90 - 28.000 -15% = 23.800
  • 110x110 - 34.000 -15% = 28.900

A.T.H: Römmun ekki innifalin.

 

Ef óskuð stærð er ekki í þessum lista, hafðu þá bara samband og við finnum út úr því.

 

Móttaka mynda er hjá Pixlum, Suðurlandsbraut 52 (Bláu húsunum) í Reykjavík.

Sendingarkostnaður er ekki innifalinn í verði, en auðvitað læt ég senda hvert á land sem er, og til hvaða lands sem er, kostnaður bætist bara ofan á söluverð. Kostnað má sjá á vef Póstsins.

 

Mikið yrði ég þér þakklátur fyrir Like-ið og þannig myndir þú hjálpa mér að dreifa þessu fína tilboði! Takk fyrir það :)