27.10.2008 - 16:08

Takk fyrir mig

Íslenzkt!
Íslenzkt!
Opnunin á sýningunni gekk fínt. Mætti þarna um morguninn og mokaði búrið út úr sköflunum með hjálp búrstjórans mikla. Alls mættu um 21 manns og tel ég það bara ágætt miðað við veður :) Vel gekk á slátrið og mjólkina og kunnu gestir vel að meta þessar alíslenzku veitingar, en þó aðalega börnin og hundurinn.

Sýningin stendur áfram og hvet ég alla til að kíkja við og bera þessa örsýningu augum.
Hérna eru myndir frá opnuninni.
23.10.2008 - 12:51

Sýningu frestað fram á Laugardag!

Arngrímur snillingur
Arngrímur snillingur
Ég frestaði ljósmyndasýningu minni fram á laugardag, en hún átti að opna kl: 17:00 í dag. Veðrið er bara þannig að ekkert myndi sjást í myndirnar ofan í búrinu sem er hinn eiginlegi sýningarsalur :) Og hvort einhver myndi mæta, er ég ekki viss og lái ég það engum.

Opnunin verður sumsé á laugardaginn næsta kl: 16:15 niður í Neðstakaupstað. Vona að allir þeir sem ætluðu að koma í dag sjái sér fært að koma þá.

Takk fyrir.

Endilega kíkið á aðra atburði Veturnátta, allt annað á dagskránni í dag er innahúss. Fullt skemmtilegt að gerast. Meðfylgjandi mynd var tekin fyrir ljósmyndakast Krumma sem opnar í dag kl: 18 í Hamraborg. Sjáumst þar!

Muna svo eftir að skrifa undir á indefence.is!
20.10.2008 - 13:24

Sýning

Finnbogi Bernódusson
Finnbogi Bernódusson
Jæja, þá er komið að næstu sýningu hjá mér en ég mun vera með svona smá sýningu í fiskabúri! Já, fiskabúri, en Lísbet Harðardóttir setti þetta búr upp fyrir 2 árum síðan og voru þá fiskar í því, en það hefur breyst og nú er það notað til að sýna í niður í Neðstakaupstað. Snilldar hugmynd b.t.w!

Er þetta partur af Veturnáttum sem er árlegur viðburður hérna fyrir vestan. Ætla ég að sýna 4 myndir alls, 2 portrett og 2 landslagsmyndir og eru þær allar svart/hvítar og prentaðar út á A3. Boðið verður upp á íslenzka mjólk og slátur við opnunina, en sýningin hefst á fimmtudaginn næsta, þann 23.11.08.

Þér er hér með boðið í opnunina!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun