17.10.2008 - 08:16

Ljósmyndakast Krumma

Ísafjörður
Ísafjörður

Tekið af vef Ísafjarðarbæjar:

"Ljósmyndakast Krumma verður í næstu viku í tengslum við hátíðina Veturnætur. Um er að ræða eins konar ljósmyndamaraþon í nýfátækum stíl, og er hugmyndin sú að áhugasamir ljósmyndarar meldi sig inn til Krumma, sem fullu nafni heitir Hrafn Snorrason, og fái hjá honum verkefni við hæfi. Hver og einn ljósmyndari tekur svo eina mynd með ákveðnu þema sem Krummi útdeilir og skilar henni til kaststjóra. Myndirnar verða síðan prentaðar út, settar í papparamma og hengdar upp í versluninni Hamraborg á upphafsdegi Veturnátta. Að hátíð lokinni fá ljósmyndararnir myndirnar afhentar til eignar. Rammarnir eru hannaðir, framleiddir og gefnir af fyrirtækinu Formfast.

 

Hámark 40 ljósmyndarar taka þátt í leiknum. Ekki eru um keppni að ræða, heldur er verið að reyna að fá fólk til að fara úr húsi og taka skemmtilegar myndir sem verða svo til sýnis fyrir bæjarbúa. Köstum okkur í þessa skemmtun og rífum okkur upp úr hversdeginum og myndum það sem okkur er kært og gaman gæti verið að eiga seinna meir. Myndirnar verða  síðan afhentar Ljósmyndasafni Ísafjarðar til varðveislu.

 

Afhending gagna fer fram mánudaginn 20. október klukkan 17 og skila þarf inn myndum fyrir klukkan 19 miðvikudaginn 22. október. Áhugasamir eru beðnir um að senda kaststjóra póst á hrafn@simnet.is  "

 

Flott hugmynd hjá Krumma. Skráði mig í gær, þetta verður stuð. Skráið ykkur endilega ef þið eruð stödd á svæðinu!

16.10.2008 - 11:30

Flöggum

Sá Íslenzki
Sá Íslenzki
Tók mig til, ýkti upp þjóðerniskenndina og flaggaði í dag. Ætla hér með að flagga um óákveðinn tíma eins og N1 og Geimskip hafa ákveðið að gera. Þetta er fín aðferð til að þjappa okkur saman og auka stolt okkar íslendinga á því einfaldlega vera Íslendingur. Þegar ég bjó í Danmörku var fáninn iðulega við stöng og fannst mér það frekar þægilegt að sjá hann blakta við hún. Verð nú að viðurkenna að þegar ég arkaði að stönginni með fánann hafði ég ekki hugmynd um hvernig ætti að gera þetta en virðist hafa leyst það og nú blaktir hann við hún að Tangagötu 8 á Ísafirði.

Skelltu þér nú út og flaggaðu kæri Íslendingur.

Áfram Ísland!
09.10.2008 - 14:08

Kreppukjaftæði

Pútín, vinur okkar á svo sannarlega skilinn seðil!
Pútín, vinur okkar á svo sannarlega skilinn seðil!
1 af 3
Þar sem það er kreppa, ber mér víst að minnast á hana eins og aðrir. Ætla þó ekki út í drullumall eins og alvörugefnir bloggarar á blog.is heldur pikka léttari strengi. Þar sem starfsfólk Snerpu og margra annara fyrirtækja er með eindæmum duglegt að pósta léttleikanum í vefpóstinn minn læt ég þetta þrennt fylgja með færslunni. Smellið á myndina til að sjá stærri, og flettið, þær eru 3.

An American said:

"We have George Bush, Stevie Wonder,* *Bob Hope, and Johnny Cash"

And an Icelander replied:

"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope,* *and no Cash"

Svo að lokum, áfram Ísland!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun