26.01.2009 - 20:16

Hjálpræðisherinn

Hasselblad 500c f8 og 1/60 - Ilford HP5 400 ASA
Hasselblad 500c f8 og 1/60 - Ilford HP5 400 ASA
Ég verslaði mér myndavél um daginn. Fann forláta Hasselblad 500c á netinu og keypti hana. Það skemmtilega við þetta er það að hún er jafngömul mér, árg 1972. Ég fékk hana að vísu linsulausa en hef aðgang að linsum, sem betur fer og þakka ég Halldóri Sveinbjörnssyni kærlega fyrir lánið. Fékk svo skanna í dag og skannaði inn afrakstur fyrstu töku minnar á gripinn.
12.01.2009 - 13:39

Kominn tími á að taka til?

Canon EOS 5D - 50mm @ 1/125 og f/3.5 400 ISO
Canon EOS 5D - 50mm @ 1/125 og f/3.5 400 ISO
Tekin við mótmæli á Ísafirði 10.01.09
15.12.2008 - 15:31

Jólasveinar Grýlusynir í Tjöruhúsinu

Elfar Logi
Elfar Logi
Ég var heppinn, en það kemur stundum fyrir. Ég vann í einhverskonar happadrætti, en það kemur aldrei fyrir mig. Þessvegna ætla ég að splæsa heilu bloggi í fagnaðarlætin. Ég vann 2 miða á sýningu Elfars Loga Kómedíumeistara, Jólasveinar Grýlusynir. En öðlingurinn Elfar, bætti við einum miða í vinninginn, þannig að Ég, Hrefna&Saga Líf skelltum okkur í leikhús í gær. Við mætingu byrjaði stemmingin, en Billa stóð í dyrunum í sínu fínasta jóladressi og bauð okkur velkomin í leikhús. Boðið var upp á léttar og ódýrar veitingar áður en sýning hófst. Elfar tók þetta svo með stæl eins og oft áður og skemmtum við okkur konunglega yfir hinum og þessum karakterum ásamt jólasveinunum öllum. Var þetta kærkomin sunnudagsskemmtun og smellti ég þessu í myndasyrpu sem má nálgast hérna.

Endilega kíkið á dagskránna og skellið ykkur á skemmtilega sýningu.

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun