08.02.2009 - 18:20

GA GA Skorrdal

Hrefna María Jónsdóttir
Hrefna María Jónsdóttir
Við fjölskyldan skelltum okkur á fatasýningu GA GA Skorrdal á föstudags eftirmiðdaginn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Magnaður fatnaður þarna á ferð, meira fyrir konurnar, en.....mér fannst konurnar ansi smart í þessum fatnaði, þær voru eins og Ronja Ræningjadóttir í huganum eða konur úr Lord of the rings. Hrefna mátaði nokkrar húfur, og mér finnst frábært að mynda hana, ljósið fellur svo fallega á andlit hennar. Tók þessa af Hrefnu með húfuna sem hún eignaðist eftir þessa sýningu. Eingöngu var notað ljós af staðnum við tökuna, ekkert flass. Hér er svo albúm frá þessu.
04.02.2009 - 18:24

Við heimtum aukavinnu!

Flott sýning!
Flott sýning!
Skellti mér á æfingu hjá Kómedíubóndanum og Litla leikklúbbnum í gær. Tók þar nokkrar myndir og má finna þær hér.

Sýningar í Edinborgarhúsinu verða sem hér segir:

Föstudaginn 6. febrúar kl.21
Laugardaginn 7. febrúar kl.21
Föstudaginn 13. febrúar kl.21
Laugardaginn 14. febrúar kl.21
Föstudaginn 10. apríl kl.21

Miðasölusími er 618 8269.
01.02.2009 - 00:12

Jónsi, Helga Guðrún &Atli

Canon EOS 5D - 24-70mm @ 1/100 og f/8 400 ISO
Canon EOS 5D - 24-70mm @ 1/100 og f/8 400 ISO
Fékk skemmtilegt verkefni sem leysa þurfti hratt í dag. Fór kl 11 og setti upp græjurnar í Gamla sjúkrahúsinu, þau mættu kl: 12:00. Myndatöku lokið kl: 01:00 og prentun&innrömmun kl: 15:00, afhent 10 mínútum seinna á planinu við Bónus,
nkl kl: 15:10!
Endaði sem fimmtugsafmælisgjöf hjá pabba þeirra. Gaman að svona smá action af og til.

Til hamingju með föðurinn!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun