23.02.2008 - 11:41

Allt að gerast

Útlit 23.02,08
Útlit 23.02,08
Thjáhh, þessi síða vex og vex og eru nokkrar nýjungar komnar inn eins og t.d Flickr myndirnar mínar og sýnishorn úr myndasafninu mínu þarna neðst niðri einhverstaðar. Skellti inn einhverjum upplýsingum um mig og notkunarrétt á myndunum mínum líka. Einn bloggari enn kominn í bloggrúlluna og ég vona að þeir sem ég set þar inn, setji sig ekki á móti því. Nú, ef þeir sem vilja ekki vera þarna vilja láta taka sig út, þá bara hafa samband og þeim verður kippt út um hæl. Einnig setti ég inn slatta af tenglum og enn sem komið er eru þeir allir tengdir ljósmyndun á einn eða annan hátt.

Og Villi vitlausi virðist ætla að sitja áfram í stjórn borgar óttans...ja hérna :)
20.02.2008 - 23:44

Ljóseynd

Var þarna í makindum mínum að taka myndir, eins og hver annar túristi! Kemur ekki trukkur á fleygiferð og eyðileggur allt...eða hvað?
18.02.2008 - 20:48

Að vera bloggari

Útlit 18.02.08
Útlit 18.02.08
þýðir víst það að maður verði að blogga einhvað. Er náttúrulega bara enn að vinna í þessari síðu, óánægður með margt, ánægður með sumt. Búinn að bæta við stórfæti hérna neðst og þarf að safna skemmtilegum bloggurum í rúlluna mína! Ef þig langar á þennan lista og er algert dúndur á lyklaborðið, sendu mér línu :) Er kominn með 2 mæta menn þarna inn, annar er nokkuð lunkinn í blogginu, en hinn er aðeins latari við skrifin. Skelli svo með skjáskoti af núverandi útliti.

Idol sucks!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun