25.02.2008 - 14:42

Áskorun

RSS!
RSS!
Usss, en mér var að berast áskorun. Eða hótun..eða hvatning, ferlega er þetta loðið. Félagi zeranico sem er gamall Ísfirðingur að nafni Pétur Geir Óskarsson óskaði eftir að fá að vita hvort þessi síða byði upp á RSS strauma, sem og hún gerir, og lét þau hörðu orð fylgja að hann gæfi mér viku í RSS lesaranum sínum, annars yrði ég bara rekinn. Þannig að ég í ofboði mínu, rauk til og bloggaði, því ekki vil ég vera rekinn úr RSS lesara hans hátignar, zeranico!

Gaman að geta þess að við Pétur erum gamlir vinir úr henni æsku og höfum nýverið tekið upp heiftarleg MSN skrif og endurnýjað vinskapinn að einhverju leyti...gaman að því.

Þarf svo að fara að setja upp þetta RSS icon!
24.02.2008 - 10:10

Önundarfjörður

Canon EOS 5D - 17-40L  @ 1/3 sek og f/22 - 17mm
Canon EOS 5D - 17-40L @ 1/3 sek og f/22 - 17mm
Skrapp þarna í gær í snjómuggu, en er búinn að komast að því að snjókoma er ekkert verri til að taka myndir. Snjókoman gefur þessu ákveðinn fíling bara, ekki satt? Önundarfjörðurinn er alveg frábær staður til ljósmyndunar.
23.02.2008 - 12:13

Saga Líf

Hún dóttir mín er ein erfiðasta fyrirsæta sem ég hef kynnst. Sennilega er hún fleygiferðasæta. Nýbúin að borða súkkulaðikex og að fá hlaupabólu höldum við.....

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun