12.03.2008 - 23:10

Halldór

Canon EOS 5D - 24-105mm L @ 1/25 sek og f/4.5 - 85mm ISO400
Canon EOS 5D - 24-105mm L @ 1/25 sek og f/4.5 - 85mm ISO400
Fór í kveld að smíða "ramma" fyrir sýninguna í Edinborgarhúsinu. Fékk hugmyndina hjá ágætum zeranico. Hann Halldór vinur minn var mjög svo hjálplegur og skar út þessar fínu álplötur og vinkla. Kærar þakkir Halldór!
08.03.2008 - 09:06

Aldrei fór ég suður - JÁ

Rokkhátíð Alþýðunnar á Ísafirði 21. og 22. mars 2008
Rokkhátíð Alþýðunnar á Ísafirði 21. og 22. mars 2008
Susssss mar, nú líður að páskum! Á Ísafirði er haldin rokksúpa sem fyrirfinnst hvergi annarstaðar á landinu. Undanfarin á hefur þessi hátíð verið haldin af hugsjón einni saman og veit ég ekki til þess að nokkur skemmtikraftur sem kemur fram taki fyrir það laun. Og við erum ekkert að tala um neina aukvisa, en sjálfur Megas mun troða upp í ár. Læt hérna fylgja með tilkynninguna sem birt var núna fyrir helgina:

Rúmlega þrjátíu atriði hafa verið staðfest á Aldrei fór ég suður – rokkhátíð alþýðunnar sem verður haldin á Ísafirði dagana 21. og 22. mars. Þeir sem koma fram eru:
  • Bob Justman
  • Hjaltalín
  • Retro Stefson
  • Sprengjuhöllin
  • XXX Rottweilerhundar
  • Sign
  • SSSól
  • Mysterious Marta
  • Megas og Senuþjófarnir
  • Dísa
  • Hraun
  • Morðingjarnir
  • Skakkamanage
  • Karlakórinn Ernir með Óttari Proppé
  • Múgsefjun
  • Johnny Sexual
  • Ben Frost
  • Abbababb
  • Sudden weather change
  • Vax
  • Vilhelm
  • Hellvar
  • Hjálmar
  • Biogen
  • Skátar
  • Ultra mega teknóbandið Stefán
  • Steintryggur
  • Lára Rúnarsdóttir
  • Benny Crespos gang
  • Flateyrar-rapp
  • Hálfkák.
Hátíðin verður haldin í gömlu Eimskipa- og Ríkisskipaskemmunni við Ásgeirsbakka Ísafjarðarhafnar. Er hún haldin með dyggum stuðningi Flugfélags Íslands, Glitnis og Símans, en þar að auki nýtur hún fjárstyrks frá Eyrarrósinni og Menningarráði Vestfjarða og andlegum og verandlegum stuðningi einstaklinga og fyrirtækja á Ísafirði og víðar um land.

Újé!
07.03.2008 - 14:18

Finnbogi&Grímur

Canon EOS 5D - 24-105mm L @ 1/15 sek og f/4 - 24mm ISO400
Canon EOS 5D - 24-105mm L @ 1/15 sek og f/4 - 24mm ISO400
Skrapp í dag og tók mynd fyrir sýninguna í Edinborgarhúsinu. Þetta er ekki sú, en fannst þessi fín líka af þessum skemmtilega karakter með syni sínum Grími.

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun