15.10.2012 - 10:27

Skutulsfjörður

Hér kemur slideshow frá Skutulfirði, mínum uppáhaldsstað í veröldinni. Hann er margbreytilegur og aldrei eins, hefur endalausa vinkla og birtuskilyrði!

 

Hérna er svo beinn linkur í albúmið :)




Skutulsfjordur Westfjords - Images by Agust Atlason

13.10.2012 - 08:51

Spaugstofan - þáttur 4

Dabbi kóngur
Dabbi kóngur

Eins og ég sagði frá í síðasta bloggi, að þá fékk ég vinnu við að gera leikmynd fyrir Spaugstofuna með Óla bróður. Þetta var alveg þrælskemmtileg vinna með skemmtilegu og duglegu fólki, mórallinn í þessum hóp var frábær, og ekki röflað yfir nokkrum hlut, þetta var bara gert og ekkert vesen :)

 

Væri alveg til í að vinna við þetta meira, en mér bauðst aðeins þessi eini þáttur núna, en kannski meira síðar. Óli sagði mér að þeir væru mjög líbó þó maður væri að taka myndir á setti og birta, þannig að ég var með hólkinn á mér allan tökudaginn og bjó til meðfylgjandi syrpu.

 

Takk Spaugstofa!

 

PS: Lék meira að segja ljósmyndara í einu atriði!

 

Update: Þar sem ég hef verið að fá athugasemdir yfir því að fólk sjái ekki slideshowið þarna niðri, þá má fara beint í albúmið!



Spaugstofan - The making of the TV show - Images by Agust Atlason

09.10.2012 - 10:09

Viðskiptaáætlun og ferðalög

Viðskiptaáætlunin!
Viðskiptaáætlunin!

Haha, undarleg fyrirsögn! Sit hérna í eldhúsinu hjá Óla bróður og bý til viðskiptaáætlun fyrir rekstur sem ég hef í huga og ætla ég að mæta á ráðstefnu/námskeið á Ísafirði um helgina fyrir atvinnu og nýsköpun og sjá hvort það sé ekki eitthvað fyrir mig. Held að þannig batterý geti ýtt verulega á eftir manni þegar maður stendur í svona og fá þá álit sérfræðinga á hvort þetta sé mögulegt og rétt að þessu staðið hjá manni. En auðvitað gildir mest að framkvæma bara hlutina og það verður gert á komandi mánuðum. Bæta aðeins í hina marglituðu flóru fyrirtækja á Vestfjörðum, þar sem allt er að gerast!

 

Hann Óli reddaði mér svo smá vinnu í Spaugstofunni þessa vikuna í leikmyndagerð og held ég að þessi vika verði áhugaverð og skemmtileg, en Óli hefur fengist við þessa hluti í ansi mörg ár núna og er farinn að hleypa litla bróður að, af og til :)

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun