08.10.2012 - 13:47

Fjölskylduferš į Snęfellsnes

Lónadrangar į Snęfellsnesi
Lónadrangar į Snęfellsnesi

Við skruppum í smá roadtrip, við fjölskyldan, á Snæfellsnes núna á laugardaginn. Eins og Íslandi sæmir á haustin, fengum við allskonar veður í þessari ferð. Fjölskyldumeðlimir voru misglaðir með það(því þá var meira bílhangs) en allir skemmtu sér þó ágætlega á endanum. Okkur tókst auðvitað að semivillast, en við ætluðum einhverja öðruvísi leið en venjulega til baka, fórum hana, en beygðum eina vitlausa beygju, og hvað gerist þá....auðvitað önnur útkoma en ætlað var. Leiðin var þó ekkert vitlaus þannig séð, skilaði sömu útkomu, en var mun lengri :) Það var ekki mikið myndanerdast, þar sem það er ekki vel séð að stoppa allstaðar og 2 tíma á hverjum stað, en fékk að stoppa við Lóndrangana og smella af einni mynd þar. En læt fylgja með smá fjölskyldumyndasyrpu hérna í slædsjóvinu að neðan.




Trip to Snæfellsnes - Images by Agust Atlason

05.10.2012 - 08:21

Synir mķnir įttu afmęli - um daginn

Ísar Logi, litli dvergurinn, var 2ja ára þann 24. September og svo var Sverrir Úlfur 15 ára þann 28. September, fullt að gera í September! Annars er Sverrir á leið hingað upp á Bifröst í dag, ég er að spá í að gabbann í að gera smá myndasyrpu með mér :) En hér er syrpa úr afmælinu hans Ísars sem var haldið um daginn.

 
My son´s 2 year old birthday - Images by Agust Atlason
04.10.2012 - 21:17

Noršurljós

Ég er að spá í að leika mér hérna aðeins með þennan slideshow möguleika sem Photoshelter býður upp á. Pósta hérna af og til albúmi af hinu og þessu. Núna koma norðurljósin, þó ég sé ekkert sá klárasti í þeim tökum, þá er þetta allavega eitthvað :)
Mæli svo með Fullscreen möguleikanum þarna í hægra horninu og slappa af og njóta ljósmynda, það er allavega ein af mínum uppáhalds iðjum!


Aurora Borealis - Images by Agust Atlason

Landslag

Portrait

Auglżsingaljósmyndun