Jæja, er á 3ja degi Facebook leysis, 1. dag reykleysis, meistaramánuður í fullum skrúða! Hef tekið eftir því að afköst í vinnu hafa stórum aukist við Facebookleysið. Hef þó haldið við Like síðunum mínum tveimur Gusti photography og Ísafjörður, svona upp á markaðssetninguna. Hef verið að setja þónokkuð af myndum inn í Galleries, hér kemur listi ef þér langar að kíkja:
Svo hefur verið nóg að gera með kúnnamyndir, og læt ég fylgja hérna með 2 portrait af henni Jóhönnu Jörgensen, en hún er 15 ára áhugaljósmyndari frá Þingeyri. Eftir því sem ég best veit, hélt hún sýna fyrstu sýningu í sumar. Ég tók af henni síðbúnar fermingarmyndir :)
Já hvað haldið þið maður, ég lokaði Facebook aðganginum mínum. Hversu lengi veit ég ekki, og afhverju? Bara kominn tími á smá pásu, vera duglegri hérna á gusti.is og prufa að koma efninu frá sér hér í smá stund. Setti þetta blog upp fyrir löngu síðan og ég nota það lítið og ætla ég að reyna að bæta úr því. Eins ætlum við konan að taka þátt í meistaramánuðinum og setja okkur nokkur takmörk, eitt af mínum var minna Facebook, en tók það bara alla leið og lokaði, tímabundið þó. Facebook síðan Gusti photography er enn uppi og er aldrei að vita nema eitthvað vinnutengt birtist þar svona af og til þennan mánuðinn :)
Þessi meistaramánuður kemur samt upp á fínum tíma, ég er að fara í aðgerð á fæti eftir einn mánuð vegna gamalls vinnuslyss sem hefur verið að hrjá mig ansi lengi og er ég kominn á síðasta snúning í þeim málum, það er erfitt að vera haltur ljósmyndari og kominn tími á að láta laga þetta almennilega. Þannig að ég ætla að koma mér í betra form þessa 30 daga fram að aðgerð til að vera betur í stakk búinn til að takast á við bataferlið þegar það hefst :)
Ég er að sýna 12
myndir sem allar eru teknar í sumar á Galtarvita. Myndirnar hanga uppi út Ágúst í Hamraborg á Ísafirði.
Hérna er texti sem fylgir sýningunni:
"Enginn lýsir
þögninni, sem umlykur Galtarvita, eitt afskekktasta byggða ból landsins. Hér er
sú þögn, sem aldrei verður í fjölmenni, það er í henni hreyfing, ljúf og góð,
sem helst má líkja við bylgjuhreyfingu túngresisins á lognkyrrum
sumardegi".
Óskar Aðalsteins rithöfundur vitavörður á
Galtarvita 1953 – 1977
Galtarviti á Vestfjörðum stendur í Keflavík sem er vík út af
Súgandafirði. Víkin snýr á mót opnu hafi og eru siglingar skipa tíðar fram hjá
vitanum. Aðeins er hægt að komast til Keflavíkur gangandi, á snjósleða eða
sjóleiðina þegar veður er gott.
Ólafur Jónasson, bróðir Ágústar hefur undanfarin ár haldið uppi
óeigingjörnu listastarfi á vitanum. Þangað hafa fjöldinn allur af listamönnum
komið til að upplifa hina einsöku kyrrð sem svæðið hefur upp á að bjóða og iðka
list sína án allar utanaðkomandi truflunar. Einnig hafa verið haldnar þar
sýningar og listviðburðir af ýmsum toga.
Ágúst Atlason hefur ljósmyndað síðan
1996. Ágúst nemur nú ljósmyndun í Medieskolerne í Viborg í Danmörku og
útskrifast hann 2014. Hefur hann lagt mikla áherslu á Vestfirði í sinni
ljósmyndun, bæði landslag, fólk og menningu. Ágúst hefur haldið fjölda sýninga
um alla Vestfirði og einnig komið að útgáfu matreiðslu- og menningarbókarinnar
Boðið vestur, sem inniheldur um og yfir 250 ljósmyndir, allar teknar af Ágústi.
Vill Ágúst með þessari sýningu
styrkja og vekja athygli á því listastarfi sem Ólafur Jónasson heldur úti á
Galtarvita.
Sýningin er sölusýning og rennur allur ágóði til styrktar listastarfinu í
Galtarvita.
Hver mynd kostar 16.000 og eru 3
eintök seld af hverri mynd.
Vinsamlegast hafið samband í síma
8404002 eða í gusti@gusti.is
Hérna er slideshow af myndunum sem eru sýndar, mæli með full screen möguleikanum þarna niðri, hægra megin: