Meistari Spessi
Ég skrapp suður í gær. Ætlaði upphaflega að nota ferðina til þess að kíkja á 2 ljósmyndara, þá Spessa og Magnús Andersen. Kíkti á Spessa og vorum við í stuði til að búa til mynd og fórum í að panna meistarann, en hann á ofurtöff Harley Davidson. Myndin sem fylgir er ein af þeim sem við tókum. Svo fórum við Spessi yfir nýju flössin mín, hann kenndi mér aðeins á þetta, en mig vantaði smá upplýsingar, þar sem ég haf aldrei notað þessa gerð flassa áður. Alltaf gott að kíkja á Spessa og blaðra um hitt og þetta.
Náði aldrei að kíkja á Magnús, dagurinn hvarf á 0-einni!
Jón Júlíus Þórisson
Svo er það hann Húlíó, Jón Júlíus Þórisson, gamall vinur minn frá Ísafirði. Hann tók rúnt hingað uppeftir fyrir 2 vikum og höfðum við ekki hist mikið undanfarin ár. Ég kíkti svo á hann í gær og hjálpaði hann mér að gera við bílinn minn, sem var eitthvað farinn að hiksta. Tókum líka á þetta hádegisburger og hittumst svo aftur til að klára að gera við bílinn minn, um kvöldið. Ákváðum að negla einu umhverfisportretti á hann og nota nýju ljósin, með hjólinu hans, og bílnum mínum. Þarna stendur hann við hornið sitt á verkstæðinu, en hann er einnig mótorhjólaviðgerðarmaður. Hann vinnur hjá Honda umboðinu.
Það blundar í mér mótormonster, sem þarf að fara að næra, annars verður Gústi gúgú...
Smellið á myndirnar til að sjá stærri :)