23.10.2012 - 14:40

Meistaramánuður - 4ða vikan

Ég er hættur að reykja! - Ég er hættur að reykja! - Ég er hættur að reykja!


Nákvæmlega! Djöfull er ég stoltur af því. Ég hef ekki bragðað sælgæti, snert á Facebook, nema Gusti photography&Ísafjörður og það hef ég bara gert markaðslega séð, þar sem ég er í ljósmyndasölubransanum. Í sambandi við Facebook, að þá verður notkun þess verulega endurskoðuð ef ég kem þá aftur þangað. Þetta er þvílíkur tímaþjófur að það er engu lagi líkt. Einnig hefur mataræðið breyst, ég er ekkert að borða ofurhollt, en hugsa aðeins meira um hvað ég er að setja ofan í mig og ét ekkert á milli mála, nema þá einstaka ávöxt eða gulrót. Aðeins farið að hreyfa mig líka, missti aðeins úr í annari vikunni vegna vinnu, en er byrjaður aftur. Ég held að svona 5kg séu horfin af mér, allavega það. Hrefna hefur líka verið dugleg og stórsér á henni líka, þetta er allt í áttina :)

 

Ég er hættur að reykja! - Ég er hættur að reykja! - Ég er hættur að reykja!

22.10.2012 - 10:17

Að geyma víðustu linsuna heima

Surtshellir og Eiríksjökull
Surtshellir og Eiríksjökull
1 af 19

Skellti mér í ljósmyndaferð í blíðunni í gær. Borgarfjörðurinn varð fyrir valinu, enda risastór og fullur af tækifærum. Miðaði á Surtshelli og víðar, endilega kíkið á syrpuna sem fylgir með, það er svo hægt að fletta myndunum með örvatökkunum :)

Það getur verið challenge, að geyma víðustu linsuna heima. Hef tekið upp á því æði oft að skella mér í ljósmyndaferðir og geyma 17-40mm linsuna mína bara heima. Sjá hvað kemur út úr því og nota meira hinar linsurnar. Þetta er oft krefjandi og lætur mann hugsa svolítið öðruvísi hvernig maður nálgast viðfangsefnið og í leiðinni góð æfing í að mastera aðrar linsur.

Að mínu mati er víðlinsan oft of mikið notuð og virðist sem fólk sé smeikt við að geta ekki komið frá sér hressandi mynd án hennar. Ég sjálfur átti í þessu vandamáli hérna áður og fannst ég ekkert geta nema vera með risa forgrunn eða mongó himinn á öllum myndum. Fór svo að taka svona daga og núna nota ég mest 35mm eða 70-200mm. Stalst til að nota 24-70mm á nokkrum myndum við Surtshelli í þessari syrpu, en það var í neyð :)

 

Maður getur nefnilega alveg tekið stórar myndir á þrengri linsur ;)

20.10.2012 - 08:48

Íslenskir ljósmyndarar - Magnús Andersen

Vefur Magnúsar
Vefur Magnúsar

Jæja, maður getur bara ekki endalaust blaðrað um sjálfan sig hérna, það fá allir leið á því einn daginn :) Ætla að setja af stað svona seríublog um Íslenska ljósmyndara og pósta af og til. Bara velja einhvern með frambærilega síðu og pósta af henni skjáskoti og nokkrum hugleiðingum. Þetta verður allt jákvætt, því ég ætla ekki að pósta neitt um það sem að ég fíla ekki :)

 

Magnús Andersen er strákur á uppleið. Hann er ég svo heppinn að þekkja persónulega, en við stundum sama námið í Medieskolerne í Viborg og nemum við þar ljósmyndun. Magnús var mér stoð og stytta í gegnum námið mitt, hann svona klár í dönsku og eldklár ljósmyndari líka, hjálpaði gamla manninum ansi oft. Hann er að gera flotta hluti í dag, átti forsíðuna á Reykjavík Grapevine um daginn og er með Airwaives special seríu þar. Hann líka að pósta töff stöffi á síðuna sína sem hann er duglegur að halda við þessa dagana. Þetta er smart, einföld síða sem auðvelt er að skoða. Auðvitað eru myndirnar geggjaðar líka, enda miklir hæfileikar á ferð þarna. Go Magnum!

 

Endilega kíkið á Magnús Andersen!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun