13.02.2009 - 09:16

Ánægjuleg fýluferð í Ísafjarðardjúp

Var sendur af foreldrum mínum í Skötufjörðinn í gær til að kanna ástand sumarhússins þeirra. Fengum óþægilegt símtal um að ljós hefðu sést inn í húsinu. En þegar á staðinn var komið reyndist þetta vera allt í lagi og allt á sínum stað í Sílakoti. Tók þessa mynd á leiðinni á Arnarnesi, en þarna má sjá einskonar höfuð eða hauskúpu hreinlega út úr ísnum á steininum. Kúl!
Set svo fleiri myndir inn þegar tími gefst úr þessari frábæru fýluferð.
12.02.2009 - 10:04

Pjétur Geir Óskarsson afhjúpaður

Svalt!
Svalt!
Endilega skokkið í búð og náið ykkur í eintak af nýjasta BB ef þið eruð stödd á Ísafirði eða nágrenni, en þar er viðtal við minn góða vin Pjétur Geir Óskarsson.
11.02.2009 - 15:58

Rafmagnað

Fallegust!
Fallegust!
Saga, nýkomin úr sundi. Þá verður hárið á henni svolítið rafmagnað. Trikkið var húfa sem er toguð af höfðinu á henni :) Annars er bara tilhlökkun á morgun, en þá kemur Sverrir Úlfur til okkar! Wúha!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun