03.03.2009 - 09:28

Ættaróðalið myndað

Góustaðir í Skutulsfirði
Góustaðir í Skutulsfirði
Við Matt erum duglegir að skella okkur út í snjóinn og mynda. Fórum í gær og ætluðum að mynda holtahverfið því ég er að safna vetrarmyndum af öllum bænum, en enduðum á því að mynda eingöngu Góustaði & Fagrahvamm. Matt er ferlega ánægður með veðrið, en þessi ósköp er akkúrat það sem hann óskaði eftir. Vonum að sólin láti sjá sig þegar veðri slotar. Mér finnst þetta best, kann einkar vel við mig í snjókomu og roki:)

Myndaalbúm.
02.03.2009 - 10:50

Heimsókn frá US of A!

Matt að mynda höfnina
Matt að mynda höfnina
Matt er mættur á svæðið. Við erum að vinna að verkefni saman um Vestfirði. Ætlar hann að stoppa í tæpa viku og ætlum við að nota tíman til skipulagningar en hann mun mæta næst á svæðið í maí og stoppa þá í 3 vikur. Fórum smá rölt í "blíðunni" í gær.

Myndasyrpa
27.02.2009 - 09:25

Undirbúningur

Málaraandskotinn!
Málaraandskotinn!
Ég er á fullu þessa dagana. Æði um, málandi veggi, betlandi hermannaföt og suða í fólki um að sitja fyrir hjá mér. Ég er að undirbúa tökur fyrir sýningu og djöfull er það gaman. Þetta er kikk, ekkert minna!
Vil nota tækifærið og biðja ykkur um að hringja í mig ef þið eigið hermannafatnað, merki þýzka hersins, Luftwaffa, járnkrossar, hakakrossar, mjúkir kossar og hvað þetta nú allt heitir. Síminn er 840 4002.

Þú ert frábær!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun