15.05.2008 - 10:14

Gręjudagur

Canon EF 50mm f/1.4 USM
Canon EF 50mm f/1.4 USM
Græjudagar eru betri en aðrir dagar, svo það sé á hreinu. Var í verkefni um daginn og tók þá ákvörðun að aurinn sem fengist úr því verkefni yrði notaður til að kaupa linsu. Linsa þessi er mjög skemmtileg stúdíó og svona all around fyrir vélina mína og hef ég notað linsuna hans Baldur óspart síðasta mánuðinn, en ákvað í dag að það væri komið nóg af því að fá hana lánaða. Pantaði hana hjá Beco og reddaði hann Jói mér henni um hæl. Var meira segja svo bráðlátur að ég fékk hann Óla bróður minn til að skuttla henni á flugvöllinn og ætti græjan að lenda seinni partinn.

Græjudagar eru uppáhalds!
23.04.2008 - 20:50

Vestfirzku alparnir

Canon EOS 5D - 17-40L  @ 1/60 sek og f/22 - 17mm ISO 100
Canon EOS 5D - 17-40L @ 1/60 sek og f/22 - 17mm ISO 100
Skrapp til Þingeyrar í vinnuferð í brjálæðislega góðu veðri. Skaut þessa á leiðinni til baka. Þarna má sjá bæinn Þingeyri undir Sandafelli og Vestfirzku alpana í bakgrunni.
21.04.2008 - 10:31

Vanręksla

Saga ljósmyndari
Saga ljósmyndari
Já, það er ekkert annað orð til yfir þetta, en ég hef gersamlega vanrækt þessa blessuðu síðu mína undanfarnar vikur.....
Svona gerist oft þegar maður vinnur við vefsíðugerð, þá er áhuginn minni að uppfæra eigin síður. En kannski er það ekki bara það sem veldur, ég hef verið ferlega upptekinn við vinnu, bæði í Snerpu og líka við ljósmyndun. Ljósmyndavinnan er framar öllum mínum væntingum áður en ég byrjaði og hefur verið nóg að gera við að smíða myndir fyrir viðskiptavini.

Fínt að frétta, móðir mín og hennar ástkæri Dúddi fara að mæta í partýið á klakanum eftir vetrarsetu á Spáni og koma þau með farfuglunum núna í byrjun maí. Það verður rosa gaman að fá þau heim aftur og veit ég að mín litla verður ánægð að fá "ömmu á Spáni" aftur heim.

Crappswappa!

Landslag

Portrait

Auglżsingaljósmyndun