01.01.2016 - 15:50

Anno 2015

Svona hékk sveinsprófið mitt fyrir prófdómarana.
Svona hékk sveinsprófið mitt fyrir prófdómarana.

2015 mun verða minnst sem skrýtnu ári í mínum huga. Erfitt ár, en líka ár sigra, meira að segja stórra sigra. Árið hófst hjá mér með sjöundu aðgerðinni á sama fætinum. Í upphafi var ég brattur og kátur með þetta, loks kæmi að endalokum sársauka sem ég hef lifað með í mörg ár. Sársaukinn fór loks, ég fattaði í raun ekki hversu mikill hann var fyrr en hann fór. Sigur 1!

Á þessum tíma sökk ég í djúpt þunglyndi og kvíða, ástand sem hefur reglulega dúkkað upp hjá mér síðan ég man eftir mér. Ég fór á þunglyndislyf, kvíðalyf og svefnlyf. Búinn að vera á sterkum verkjalyfjum í 5-6 ár. Ósigur 1.

Eftir þessa aðgerð fóru fleiri meiðsl að koma í ljós í skrokknum. Meiðsli sem ég hafði þróað með 15 mánaða hækjunotkun, en það er alls tíminn sem ég hef eytt á hækjum undanfarin 15 ár, einn mánuð á ári sagði við mig mæt kona um daginn! Og þá er ég ekki að telja með fjöldamörg önnur tilvik sem ég hef endað á hækjum eftir. Mýmörg atvik, ekki satt mamma? Ég ákvað að leita mér hjálpar, ég þurfti á henni að halda. Góður vinur mælti með að ég myndi skoða VIRK ( http://virk.is ) en mér fannst erfitt að troða mér á kerfið, þannig að hann hringdi bara og pantaði fund hjá henni Fanney Páls hjá VIRK hérna á Ísafirði og rak mig svo af stað. Sigur 2!

Þetta var mitt mesta...


Meira
07.03.2015 - 09:00

50 dagar heima

Sturta sig
Sturta sig
1 af 4

Ég er búinn að vera heima í 50 daga! Þetta er að vísu ekki í fyrsta skiptið sem ég geri þetta, yfirleitt í kringum 65 dagar törnin áður en maður getur farið að láta sjá sig. Hugsið um alla þá sem gera þetta árið um kring, þeir eru ansi margir, sem slást við langvinn veikindi alla daga. Það eru hetjur.

 

Þannig að ég þakka nú bara fyrir að fara að komast af stað. Nú fer ég vonandi að komast í endurhæfingu og þá kemst maður út á meðal fólks. Að vera svona mikið heima gerir manni ekkert gott. Maður hefur kafað í dýpstu djúp meðvitundarinnar, þreifað á þunglyndi, sem er óumflýjanlegt í aðstæðum sem þessum. Ég er búinn að detta í sjálfsvorkun, kvíða og vonleysi og allskonar vesen á mér. Aðrar aðstæður í lífinu hafa líka tekið á, eins og ástvinamissir Hrefnu ásamt ýmsu öðru sem ég ætla ekkert út í hérna. Hrefna sagði við mig að þetta hlyti að vera einskonar prófraun á okkur, ég trúi henni alveg.

 

Ég fór til læknis um daginn í Reykjavík og náði að gista undir öðru þaki eina nótt af þessum 50 og þótti mér það afar gott, gerði ferðalagið langt og skemmtilegt, sirka 35 tíma. Fór með vini mínum honum Snorra, en hann vinnur við að keyra fluttingabíl. Þetta var mesta kikkið alla 50 dagana. Lækninum leist vel á mig, en fór svo að útskýra afleiðingar og eftirköst aðgerðarinnar, en nú er fóturinn á mér fastur, frá fyrir neðan hné og niður í tær. Eins og L. Ég þarf að læra að ganga upp á nýtt við þessar aðstæður og mun ég mjög líklega alltaf verða haltur héðan frá. Mér fannst þetta ekkert rosalegt þegar hann sagði þetta við mig, einhvernvegin bara já ok, hmmm....en svo fór þetta að síast inn og ég verð að viðurkenna að þetta tekur svolítið á mig og er ég enn að melta þetta. Ég mun þurfa að nota sérsmíðaða skó með veltibotni og kannski ég nái eðlilegu göngulagi þannig.

 

Nú, þegar ég er búinn að fara á botninn andlega og líkamlega, hlýtur leiðin að fara að liggja upp á við. Þangað stefni ég allavega. Margir hafa það verr en ég og við fjölskyldan, mjög margir. Nú er ég farinn að æfa hérna heima með lóðum og á gólfi og einnig útvegaði Stebbi Dan mér trimmform tæki til að þjálfa og  stækka á mér kálfann á veika fætinum, en hann er nánast horfinn og er orðinn grennri en handleggurinn á mér. Vonandi kemst ég svo að hjá sjúkraþjálfara í næstu viku og á fætur í apríl, en næsti fundur með lækni er 21 apríl.

 

Mér hefur þótt gott að skrifa mig út úr þessum köflum í lífinu og er þessi pistill skref í því að loka leiðindarkafla og vonandi opna nýjan og betri kafla með hækkandi sól :)

 

Persónuleg markmið: Jamm, vera jákvæðari, komast á skíði næsta vetur og geta ekið mótorhjóli. Leikið við börnin, tekið göngutúra. Finna hamingjuna aftur!

 

Læt fylgja með nokkrar myndir, en ég hef reynt að dokúmentera heimaveruna , leiðist ekki á meðan.

 

PS: Svo duttu inn mjög jákvæðar fréttir um vinnu fyrir Hrefnu rétt á meðan ég skrifaði þetta, kannski er taflið að snúast, við skulum sjá til. Meira um það síðar!

10.01.2015 - 08:30

Allt gott

Jólakortið í ár
Jólakortið í ár

Hvað segir þú í dag? Allt gott! Þetta segjum við oft, líka þegar það á ekki við. Stundum er ekki allt í góðu hjá okkur. Ég er að fara í gegnum eitt þannig tímabil núna, reyndar í 5ta eða 6ta sinn, en hver er að telja? Það er uppskurður framundan, næsta föstudag, til að reyna að losa mig við sársauka sem ég hef lifað við í nokkur ár núna. Sumir vita hvað gerðist, en fyrir forvitna má lesa slysasöguna hérna. Nú á að stífa liðina fyrir neðan með þremur skrúfum og í framhaldi taka við 3 mánuðir í gifsi. Þá mun ég hafa eytt einu ári og þrem mánuðum til í gifsi, aðeins vegna þessa slyss, geri aðrir betur! Ég ætlaði að vera í sveinsprófinu mínu í ljósmyndun núna og eru allir bekkjafélagarnir að klára úti í Danmörku, það var sárt að fara ekki, en ég mun spreyta mig í ágúst.

 

Í framhaldi af þessu öllu saman, hef ég ákveðið að loka stúdíóinu mínu og hætta því sem ég hef verið að gera síðastliðin ár. Hvíla mig aðeins og vonandi koma ferskur til baka. Ég ætla að reyna að fá mér öðruvísi vinnu í einhvern tíma og sjá svo til að ári liðnu, þannig að ég mun ekki taka að mér neina ljósmyndavinnu fyrr en ég tel mig tilbúinn til. Að sjálfsögðu mun ég klára allt sem lofað hefur verið. Ég ætla samt að halda áfram að selja myndir sem ég tek og hef tekið og er stefnan að búa betur um þá hnúta og vinna í þeim málum á meðan ég ligg í sófanum. Ég mun einnig taka að mér alla hönnunarvinnu, nafnspjöld, auglýsingar, plaköt og þannig lagað og er stefnan að framfleyta fjölskyldunni þannig í gegnum þetta tímabil. Mér einmitt tókst að safna fyrir fartölvu með tilboðinu mínu núna fyrir áramótin og þakka ég þeim sem versluðu af mér myndir!

Þannig að ef þið vitið um einhvern sem vantar þannig vinnu unna eða ykkur sjálfum vantar þannig vinnu unna, endilega sendið mér póst í kringum mánaðarmótin :)


Meira
Fyrri síða
1
234567414243Næsta síða
Síða 1 af 43

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun