14.03.2012 - 11:43

Nýr vefur með stóru vestfirsku myndasafni

Sett hefur verið upp nýtt útlit og einnig hefur verið sett upp myndasafn upp hjá Photoshelter, en þeir eru með innbyggða vefverslun og skemmtilegt kerfi til að halda utan um og afhenda viðskiptavinum myndir. Það er von mín að halda þessu með reglulegum skrifum, oft hefur verið reynt en aldrei haldið úti neinum reglulegum skrifum. Ætli þetta verði ekki að mestu ljósmyndatengt blog og maður getur notað þetta til að sýna hvað maður er að gera í það og það skiptið. Ég fór sjálfstætt starfandi í þetta núna um áramót og hef haft nóg að gera. Hef tekið að mér alla almenna ljósmyndavinnu, þar á meðal að mynda töluvert af mat og einnig líka verkefni eins og að mynda vinnslu í rækjuverksmiðju, taka myndir af öllu vinnsluferlinu. Tískuljósmyndun hef ég líka sinnt og læt ég fylgja með hérna slideshow frá þeirri vinnu :)

Blog-ið verður á íslensku einungis, en annað efni er á ensku, eins og er.

Takk fyrir innlitið og ég vona að þú kíkir sem oftast við :)

 
GuSt Winter 2012-2013 - Images by Agust Atlason
05.02.2012 - 20:52

Slideshow!


Women - Images by Agust Atlason
07.08.2011 - 19:22

Ég hélt út til náms

"Dagheimilið"
Það verður ekki af manni tekið, maður lætur stundum vaða í ævintýr. Þegar Hrefna komst inn í lögfræðina spurði ég hana hvað henni fyndist um að ég sótti um í ljósmyndanám í Danmörku. Hrefna var auðvitað alsæl með að hafa komist inn í sitt nám og sagði mér til undunar já, svo lengi sem við höfum efni á því. Sennilega hefur gleðivíma hennar eitthvað með þetta svar að gera, en hvað um það, hér er ég og er ég henni þakklátur. Hrefna mun að sjálfsögðu búa á Bifröst, en þar er mjög svo vænt umhverfi fyrir hana til náms og að sjá um börnin, en það má líkja því við að búa í bómull, að búa á Bifröst. Þar er allt í 2-3 mínútna fjarlægð og gott fólk allt í kring.

Allavega, að þá hefur allt gengið að óskum hingað til. Ég flaug til Billund aðfararnótt laugardags og sótti hann Óli Páll fjölskylduvinur minn mig þangað. Við héldum svo til Randers þar sem ég hitti Sissu konuna hans, sem BTW passaði mig sem barn, og dóttur þeirra Guðrúnu Þórey. Þar eyddi ég svo restinni af helginni í góðu yfirlæti, takk fyrir það Óli&Sissa. Svo skutluðu þau mér hingað í skólann líka núna áðan, sögðu mér að þau yrðu nú að koma mér alla leið!
Ég tékkaði mig svo inn á Skolehjemmet og komst að því að ég fékk eins manns herbergi, sem ég kann einkar vel við, gamli maðurinn :) En flest herbergin eru víst 2ja manna, gott mál. Búinn að koma mér fyrir og ætla svona aðeins að lýta í kringum mig í kvöld. Svo byrjar skólinn í fyrramálið, maður er nú búinn að fá nett panic attacks yfir þessu öllu saman, en ég ætla að taka íslendinginn á þetta og segja, ÞETTA REDDAST!
17.11.2010 - 10:33

Nýtt útlit

Arnarnesviti
Arnarnesviti
Þetta er að detta, erfið fæðing, en skal þó hafast. Að hafa vefsíðu í dag til að koma frá sér hugsunum/skoðunum og öðru einhvernvegin dó með Facebook. Þannig að maður þarf að taka annan pól í hæðina og finna þessu nýjan tilgang. Gamla síðan var of víðtæk að mínu mati og einhvernvegin var hún/ég að reyna að vera allt í einu. Núna ætla ég að fókusa á ljósmyndun, og þá mest á það sem ég er að gera en taka af og til innslög frá því hvað aðrir eru að gera og hvað er spennandi þarna úti, í ljósmynduninni. Hvernig það fer, þori ég ekki að spá um, látum bara vaða!
25.06.2010 - 15:15

Hjálp óskast

Stundum leiðir ljósmyndunin og þörfin fyrir að skapa, mann út í óvissuna. Maður er alltaf að finna nýjar hugmyndir til að vinna að og eru 2 nokkuð stórar hugmyndir núna á teikniborðinu. Önnur fer fram núna í endaðan júní og heldur áfram í júlí og jafnvel byrjun ágúst. Sú seinni fer af stað í haust, september/október. Þetta verður eflaust skemmtileg vinna og lærdómsrík og langar mig að finna ungt fólk sem væri til í að aðstoða mig og fá reynsluna að launum ásamt aðgangi að græjunum mínum og hvernig er að vinna á setti. Get því miður ekki greitt nein laun í formi peninga en eins og ég sagði áður að þá getur smá reynsla verið dýrmæt :) Þetta er alls ekki erfið vinna, né mikil, heldur fyrst og fremst skemmtileg og fræðandi um hvað þetta snýst allt saman.

Þegar ég var að fikra mig áfram var ég svo heppinn að fá að aðstoða Spessa þegar hann var að gera kvenhetju seríuna sína og fannst mér það rosa fín upplifun og góð reynsla og núna bara fyrir stuttu síðan aðstoðaði ég hann við myndatökur á BÍ/Bolungarvík dagatalinu bara til að ná mér í smá lærdóm og kom sér það vel fyrir mig og safnaði upplýsingum í reynslubankann. Með því að vera að leita að hjálp í þetta er ég þó ekki að setja mig á sama stall og meistari Spessi heldur langar mig að miðla því sem ég kann til yngra fólks og vonandi vekja hjá því áhuga á ljósmyndun hérna fyrir vestan.

Ef að þú ert strákur/stelpa sem hefur áhuga á þessu og býrð á Ísafirði, þá vinsamlegast hafðu samband og ræðum málin, væri gott að fá í pósti svona sirka hvað þið hafið verið að gera áður í ljósmyndun :)
Fyrri síða
1
234567161718Næsta síða
Síða 1 af 18