Júlli við opnun sýningar sinnar í Edinborgarhúsinu í janúar 2008
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Listaverkin hans Júlla
Fiskarnir hans eru notaðir undir pönnur á heimsins besta fiskveitingastað í Tjöruhúsinu á Ísafirði
Sýning Júlla í fiskabúrinu sumarið 2008
Sýning Júlla í fiskabúrinu sumarið 2008
Sýning Júlla í fiskabúrinu sumarið 2008
Skútan
Ásthildur með einn smáfiskinn
Skútan flotta
Fyrir rúmlega viku, þann 28. september fékk ég þær fréttir að hann
Júlli væri dáinn. Júlla hef ég þekkt síðan ég man eftir mér, fyrsta
minningin var einhvernvegin þannig að hann og félagar hans, sem ég man
ómögulega hverjir voru, bundu mig fastann við hús. En ekki lengi, voru
bara svona rétt að stríða litla stráknum. Hann leysti mig fljótt og
baðst afsökunar og sagðist svo þekkja hann Óla bróður en Ingi bróðir
Júlla og Óli eru vinir. Í gegnum mín djammár hittumst við oft, ég Júlli
og Ingi, en við Ingi höfum alltaf verið mestu mátar. Einnig vorum við
Bára systir hans góðir vinir og brölluðum ýmislegt saman á tímabili.
Júlli var einn aðal karlinn þegar ég var yngri og báru allir mikla
virðingu fyrir þessum dreng.
Ég missti svo af Júlla í nokkur ár en
undanfarin ár höfum við alltaf rætt málin þegar við höfum hist og er
mér sem ferskast í minni hvað hann var alltaf duglegur að hrósa manni
og hvetja til að gera betur og meira í ljósmynduninni. Hann var mikill
listamaður og ég hef alltaf munað eftir honum að búa einhvað til.
Fyrsta sem ég sá var leðurblaka sem var gerð úr vír og leðri og var
svona frekar scary. Síðastliðin ár hefur hann svo verið í grjótlistinni
og hefur gert fjöldamörg verk úr grjóti, flotta fiska og alls kyns
kynjaverur og má segja að þetta sem hann var að gera sé mjög frumlegt.
Einu sinni hittum við Saga hann Júlla og hann gaf henni einn nettan
fisk sem Saga geymir í herberginu sínu og fannst henni það ansi
merkilegt að einhver gæti gert svona úr grjóti. Júlli var duglegur að
sýna steinana sína og ef maður gengur um fallegasta hverfi bæjarins má
sjá listaverkin hans þar og inn í tjöruhúsi en þar hitti ég Júlla
nánast alltaf þegar ég kom við. Hann hjálpaði oft við
eldhússtörfin á veitingastað þeirra hjóna Magga og Rönku.
Ég gleymi því
ekki þegar við Matt fórum í heimsókn til hennar Ásthildar vegna
verkefnis sem við erum að vinna að og tókum við viðtal við hana. Við
Matt röltum svo aðeins um heimakynni Ásthildar á eftir til að mynda og
þegar við vorum að fara vildi Ásthildur að við settumst aðeins niður,
hún ætlaði að segja okkur sögu af honum Júlla, en þegar Júlli var í
fangelsinu gerði hann verk úr vírum stáli og nöglum og sagði hún að
mikil heift og reiði hefði fylgt þessu verki. Þegar hann kom með það í
húsið var auðvelt að skynja þessar tilfinningar. En einn daginn hvarf
þetta verk bara og greinilega einhver kaflaskil urðu og Júlli snéri sér
að steinlistinni. Hún sagði okkur söguna af innlifun og tók okkur svo
inn í hús og sýndi okkur nokkur af listaverkum sonarins, sem greinilegt
var að hún var stolt af. Það verk sem stóð upp úr var skúta gerð úr
steini með leðursegli, algert meistaraverk. Mig minnir að skútan hafi
verið nefnd í höfuðið á þeim hjónum á skemmtilegan hátt.
Ætlunin var
að taka Júlla einnig í viðtal fyrir verkefnið og var hann meira en til
í að vera með, en því miður hljóp tíminn frá okkur. Síðasta skiptið er
ég heyrði í Júlla var svo bara rétt fyrir andlát hans en hann var
alltaf svolítið spes og í rauninni datt ég næstum því af hjólinu mínu
er hann kom akandi að mér og sagði hátt og snjallt að steinskúlptúrinn
sem hann ætlaði að gera fyrir mig færi að verða tilbúinn, en við höfðum
mælst um að hann gerði fyrir mig hnefa úr steini sem ég ætlaði svo að
kaupa af honum. Hann stoppaði ekkert þarna, heldur ók bara hlægjandi í
burtu, sínum prakkarahlátri.
Júlli átti sína djöfla að draga en aldrei týndi hann sjálfum sér sem stórhjarta strákur sem vildi allt fyrir alla gera.
Minning hans mun ávallt lifa í hjörtum okkar.
Elsku Ásthildur og Elli, Úlfur og Sigurjón Dagur, Ingi, Bára og Skafti og aðrir aðstandendur og vinir, innilegar samúðarkveðjur.
Endilega rúllið í gegnum myndirnar að ofan en þar má sjá nokkur verk Júlla.