08.04.2009 - 13:22

NV Vestfirðir II

Plakatið sem Gunni Bjarni hannaði og Pixel prentaði.
Plakatið sem Gunni Bjarni hannaði og Pixel prentaði.
Páskar.....ahhhhhh.....segjum þetta aftur...Páskar.....ahhhhhh!! Gæti sagt þetta í allan dag, eða allavega einhvað af honum. Nú er að renna í hlað einn minn uppáhaldsárstími. Ísafjörður lifnar allur við og er margt um manninn hérna á þessum tíma. Gamlir brottfluttnir ísfirðingar heimsækja æskuslóðirnar og er frábært að hitta allt fólkið aftur, Páskar.....ahhhhhh.....

Ég ætla svo að opna mína fjórðu einkasýningu á ljósmyndum, en þess ber að geta að þetta er mín fjórða sýning á aðeins einu ári! Ég er mjög stoltur af því:)
Sýningin mun verða haldin á Kaffi Edinborg, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Sýndar verða 12 kryddaðar landslagsmyndir prentaðar á striga í stóru prenti, allt frá 50cm upp í 130cm á breiddina. Er það Pixel ehf sem prentar myndirnar og rammar þær líka á blindramma. Pixel er aðal stryktaraðili sýningarinnar og hefur vinnan með þeim verið einkar liðleg og þjónustan góð. Vil ég nota tækifærið og þakka þeim sérstaklega fyrir hjálpina, Bjarni, þú rokkar!

Einnig hafa hinir ýmsu aðilar lagt mér lið og vil ég þakka eftirfarandi:
Vona að þú komist, því þér er boðið :)

Gleðilega Páska!
27.03.2009 - 14:46

Auðun&ísbjörninn

Auðun&ísbjörninn
Auðun&ísbjörninn
Eitt af því sem ég hef mjög gaman að gera í sambandi við ljósmyndun, er leikhúsljósmyndun. Þar nær maður lífi og list saman og vonandi einhverri tilfinningu með. Gefandi starf og höfum við Elfar Logi svolítið verið að leika okkur að þessu, en hann er einmitt aðalleikari Vestfjarða. Með orðinu aðalleikari meina ég það að hann er AÐAL leikarinn okkar! Hann er alltaf að, og gerir ýmislegt sem manni dytti ekki í hug að einn maður raunverulega gæti. Á hann að vísu góðann stuðning konu sinnar. Alltaf þegar hann lætur heyra í sér með nýtt verk, verður maður spenntur og setur í gírinn. Auðunn&ísbjörninn er næstur á dagskrá!

Allt um sýninguna og miðakaup hér!
24.03.2009 - 08:57

Gorch Fock II fyrir seglum út Ísafjarðardjúp

1 af 3
Átti stórkostlega stund í gær. Við Hemmi Hemm renndum á slöngubát í kjölfar Gorch Fock II sem er þýskt skólaherskip með 142 liðsforingjaefni um borð ásamt 60 manna áhöfn. Þvílíka scenenið sem þetta var, vá! Takk fyrr farið Hemmi, þetta var rokk!

PS: Á mynd af þessu í Morgunblaðinu í dag, síða 6!

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun