14.03.2009 - 19:21

Fræga fólkið&forsetinn

Æðislegt!
Æðislegt!
Skruppum á Blaðaljósmyndarasýninguna í dag og hittum forsetann. Pjétur náði forsetanum á tal og fékk að smella af mynd af honum og Luna. Ég smellti mynd af ljósNyndaranum smella mynd af forsetanum og Luna. Mynd í mynd!
12.03.2009 - 08:29

Kraftlyfting

POWER!
POWER!
1 af 3
Funheitir, svellkaldir og til í allt! Myndataka í Funa, fyrir plakat. Persónulega fannst mér þessi skemmtilegust, þó svo að það sjáist ekkert í trommarann, en hver þarf sosum að sjá hann? Annars er hann á næstu mynd, flettu bara :)
11.03.2009 - 08:30

Íþróttaskóli KFÍ

Brynja, Hössa&Þórdísar.
Brynja, Hössa&Þórdísar.
Hann Árni vinur minn er með íþróttaskóla í nokkra mánuði yfir vetrartímann. Þarna mæta krakkarnir og spóla úr sér mikilli orku á laugardögum. Þvílíka fjörið alltaf og kunna krakkarnir vel að meta þetta stuð. Fórum á laugardaginn með aukabarn, en Anja hennar Völu og hans Trausta fékk að fljóta með. Hún og Saga eru vinkonur, allavega svona mest af tímanum :D

Myndaalbúm.

Landslag

Portrait

Auglýsingaljósmyndun